Auðnast
Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja: - skilja eigin líðan og samskipti betur - takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð - byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl - sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.
More episodes
-
35 - Uppsagnir og sálfélagsleg skuld á vinnustöðumMon, 02 Nov 2026
-
34 - þegar gervigreindin mætir í vinnuna, hvað verður um okkur?Fri, 02 Oct 2026
-
33 - Erfið samskipti og áhrif þeirraTue, 15 Sep 2026
-
32 - Fjarvistir á vinnustaðMon, 15 Jun 2026
-
31 - Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndumWed, 13 May 2026
Podcast masyarakat & budaya lainnya